Horft á myndskeið í Myndskeiðaforritinu
Notaðu Myndskeiðaforritið til að spila kvikmyndir og annað myndskeiðsefni sem þú hefur
hlaðið niður í tækið þitt. Með Myndskeiðaforritinu geturðu einnig sótt veggspjöld,
samantektir og upplýsingar um flokk og leikstjóra kvikmynda. Þú getur líka spilað
kvikmyndirnar þína á öðrum tækjum sem eru tengd við sama netkerfi.
Ef til vill er ekki hægt að spila öll myndskeið í Myndskeiðaforritinu.
1
Pikkaðu á táknið til að opna heimavalmynd myndskeiðs
2
Birta myndskeið sem var verið að spila
3
Dragðu vinstri brún skjásins til hægri til að fletta öll sótt og vistuð myndskeið
4
Skoðaðu öll myndskeið sem vistuð eru í tækinu
5
Skoðaðu myndskeið á netinu
6
Pikkaðu á til að spila vistaðar eða sóttar myndskeiðsskrár
7
Skoðaðu valmyndarvalkosti myndskeiðsins
8
Flettu upp eða niður til að skoða efni
Myndskeið spilað í Myndskeiðaforritinu
1
Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á
Myndskeið.
2
Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila. Ef myndskeiðið birtist ekki á
skjánum skaltu draga vinstri brún skjásins til hægri til að opna heimavalmynd
Myndskeiða og finna og pikka á myndskeiðið sem þú vilt spila.
3
Pikkaðu á skjáinn til að sýna eða fela stýringarnar.
4
Til að gera hlé á spili pikkarðu á . Til að halda spilun tónlistar áfram skaltu pikka á
.
5
Dragðu vinnslustikumerkið til vinstri til að spóla til baka. Dragðu vinnslustikumerkið
til hægri til að spóla áfram.
Stillingum breytt í myndskeiðum
1
Á Heimaskjár, pikkarðu á , finnur síðan og pikkar á
Myndskeið.
2
Dragðu vinstri brún skjásins til hægri til að opna heimaskjávalmynd myndskeiðs og
pikkar síðan á
Stillingar.
3
Breyttu stillingum eins og óskað er eftir.
117
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Hljóðstillingum breytt meðan myndskeið er spilað
1
Meðan myndskeið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta stýritakkana.
2
Pikkaðu á >
Hljóðstillingar og breyttu svo stillingunum að vild.
3
Þegar því er lokið pikkarðu á
Í lagi.
Myndskeiði deilt með öðrum
1
Þegar myndskeið er spilað pikkarðu á , pikkaðu síðan á
Samnýta.
2
Pikkaðu á forritið sem þú vilt nota til að deila völdu myndskeiði, fylgdu síðan
viðeigandi skrefum til að senda það.