Skjár tækisins speglaður á sjónvarpsskjá með snúru
Þú getur tengt tækið við samhæft sjónvarp með MHL-snúru og speglað skjá tækisins á
sjónvarpsskjánum.
MHL og HDMI™ snúrur og millistykki fylgja ekki með.
Sony ábyrgist ekki að tækið styðji allar gerðir af MHL og HDMI™ snúrum og millistykkjum.
Efni úr tækinu þínu skoðað í sjónvarpi sem styður háskerputengingiílag
1
Tengdu tækið við sjónvarp með háskerputengisnúru. birtist á stöðustiku
tækisins eftir að tengingu er náð.
2
Sjónvarpið birtir skjáinn á tækinu þínu.
Ef tækið getur ekki numið skjáinn sem er tengdur við háskerputengingisnúruna tengirðu
háskerputengingisnúruna aftur og pikkaðu á
Stillingar > Tengingar tækis > USB-
tengimöguleikar > Greina USB-tæki.
Efni úr tækinu skoðað í sjónvarpi sem styður HDMI™ inntak
1
Tengdu tækið við MHL-millistykki og tengdu millistykkið við USB-tengi sem kveikt
er á.
2
Tengdu millistykkið við sjónvarp með HDMI™ snúru. birtist á stöðustiku tækisins
eftir að tengingu er náð.
3
Sjónvarpið sýnir skjáinn á tækinu.
Hjálp um sjónvarpsfjarstýringu skoðuð
1
Meðan tækið er tengt við sjónvarp dregurðu stöðustikuna niður til að opna
tilkynningarspjaldið.
2
Pikkaðu á
Háskerputenging virk. MHL-stillingar birtast á sjónvarpsskjánum.
3
Veldu
Notkun fjarstýringar.
Þú getur valið
Stærð myndefnisfrálags til að stilla stærð frálagsins á sjónvarpsskjánum. Ef
sjónvarpið er með eiginleika fyrir sjálfvirka skölun virkjaða birtist þessi stilling ekki undir MHL-
stillingum.
Þú getur einnig ýtt á gula takkann á sjónvarpsfjarstýringunni til að opna tilkynningaskjáinn.
Tækið aftengt frá sjónvarpi
•
Taktu MHL-snúru eða MHL-millistykki úr sambandi við tækið.