Forritaskjár
Forritaskjárinn, sem opnaður er af heimaskjánum, inniheldur þau forrit sem eru foruppsett
á tækinu ásamt þeim forritum sem þú sækir.
Öll forrit á forritaskjánum skoðuð
1
Á heimaskjánum pikkarðu á .
2
Flettu til vinstri eða hægri á forritaskjánum.
Forrit opnað á forritaskjánum
•
Flettu til vinstri eða hægri til að finna forritið og pikkaðu síðan á forritið.
Leitað að forriti af forritaskjá
1
Þegar forritaskjárinn er opinn pikkarðu á
Leita í forritum.
2
Sláðu inn heiti forritsins sem þú vilt leita að.
Forritaskjárinn opnaður
•
Til að opna valmynd forritaskjásins dregurðu vinstri brún forritaskjásins til hægri.
Forrit á forritaskjánum fært
1
Þegar forritaskjárinn er opinn pikkarðu á .
2
Gakktu úr skugga um að
Eigin röð sé valið undir Flokka forrit.
3
Haltu inni forriti þar til það er valið og dragðu það svo á nýja staðinn.
Flýtileið að forriti bætt við heimaskjáinn
1
Á forritaskjánum, snertu forritstákn og dragðu svo táknið efst á skjáinn.
Heimaskjárinn opnast.
2
Dragðu táknið þangað sem þú vilt hafa það á heimaskjánum og slepptu svo
fingrinum.
Forritum raðað á forritaskjáinn
1
Þegar forritaskjárinn er opinn pikkarðu á .
2
Pikkaðu á
Flokka forrit og veldu síðan valkost.
Forrit fjarlægt af forritaskjánum
1
Haltu inni einhverju svæði á forritaskjánum þar tækið titrar. Öll forrit sem hægt er
að fjarlægja eru sýnd með .
2
Veldu forritið sem þú vilt fjarlægja og pikkaðu síðan á
Eyða.
25
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.