Græjur
Græjur eru lítil forrit sem þú getur notað beint á heimaskjánum. Þær virka líka sem
flýtileiðir. Til dæmis gerir veðurgræjan þér kleift að sjá helstu veðurupplýsingar beint á
heimaskjánum. Þegar þú pikkar á græjuna opnast svo allt veðurforritið. Þú getur sótt fleiri
græjur á Google Play™.
26
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Græju bætt við heimaskjáinn
1
Haltu inni tómu svæði á Heimaskjár þangað til tækið titrar pikkaðu síðan á
Græjur.
2
Finndu og pikkaðu á græjuna sem þú vilt bæta við.
Til að breyta stærð græju
1
Styddu á græjuna þar til hún stækkar og síminn titrar, slepptu þá græjunni. Ef
hægt er að breyta stærð græjunnar birtast rammi og stækkunarpunktar.
2
Dragðu punktana inn eða út til að minnka eða stækka græjuna.
3
Til að staðfesta nýja stærð græjunnar pikkarðu einhvers staðar á Heimaskjár.
Græja fjarlægð
•
Styddu á og haltu græjunni þangað til hún stækkar og tækið titrar, dragðu þá hana
þá á nýja staðinn.
Græja fjarlægð
•
Styddu á og haltu græjunni þangað til hún er valin og dragðu hana svo að
Fjarlægja af heimaskjá.